Dagbók Kjartans
27.08.2006 22:44:29 / kjarri1

Thank you for smoking

Rétt áðan fór ég í bíó á myndina Thank you for smoking og líkaði mjög. Þetta er mynd um mann sem er talsmaður tóbaksframleiðenda og það er býsna fyndið að sjá þetta. En það er ein tilfinning sem fór um mig ég horfði á þessa mynd, þrátt fyrir að myndin sé voðalega fyndin þá er ég ekki frá því að hún auki frekar líkur á að maður vilji byrja að reykja heldur en að vilja ekki byrja að reykja. Vegna þess að talsmaður tóbaksframleiðanda var svalur, það er bara ekkert öðruvísi en það. Maður kenndi til um manninn þegar hann lenti í miklum vandræðum og varð alltaf ótrúlega ánægður þegar honum gekk vel. Ég veit í rauninni ekkert hverjir framleiða þessa mynd en það gæti allveg verið að tóbaksframleiðendur hafi eitthvað tekið þátt í því. Á meðan þessi mynd verði vinsæl útum allan heim með því að gera grín af tóbaksframleiðendum þá hefur hún örugglega þau áhrif á fullt af fólki að það er alltilagi að reykja.Og jafnvel bara þessi orð "Thank you for smoking" það fer inní undirmeðvitundina okkar þrátt fyrir að maður myndi kannski ekki viðurkenna það.

kv: Kjartan


» 1 hafa sagt sína skoðun